26. október 2023
Byggðastofnun lækkar óverðtryggða vexti landbúnaðarlána
Þann 18. október sl. tók Byggðastofnun þá ákvörðun að lækka álag á óverðtryggða vexti landbúnaðarlána um 1 prósentustig. Einnig var tekin ákvörðun um að lækka álag á óverðtryggða vexti lána til kynslóðaskipta í landbúnaði 1,3 prósentustig og taka þessar breytingar gildi þann 1. nóvember nk.
20. október 2023
Vefráðstefna Nordregio 2023- ungt fólk á Norðurlöndum
Miðvikudaginn 17. október var haldinn vefráðstefna á vegum Nordregio og var málefnið byggðaþróun og skipulagsmál um framtíð Norðurlandanna. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar var ungt fólk á Norðurlöndum og hvernig þeirra sjónarmið er tekin inn í stefnumótun og áætlanagerð ríkis og sveitarfélaga. Ráðstefnan var mjög áhugaverð en þar voru bæði fagaðilar með fræðandi fyrirlestra ásamt því að rætt var við ungt fólk um þátttöku þeirra í stefnumótun og framtíðarskipulagningu og hvað þurfi að gera til að komið verði í veg fyrir brottflutning ungs fólks úr dreifbýli.
27. september 2023
Verslun í dreifbýli – Byggðarstofnun auglýsir eftir umsóknum
Byggðastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.9 Verslun í dreifbýli.
5. september 2023
Ýmsir styrkir í boði fyrir samfélagsverkefni, uppbyggingu og nýsköpun
Sumri hallar og haustið tekur yfir með allri sinni litadýrð og fegurð. Nú í byrjun september heyrist á tali fólks að spennan yfir réttum er allsráðandi og vonum við að veðurblíðan sem hefur verð ríkjandi síðustu mánuði verði með okkur sunnlendingum í liði áfram. September er líka mánuður hinna ýmsu sjóða en Uppbyggingarsjóður Suðurlands opnaði fyrir umsóknir í sjóðinn þann 5. september sl. og rennur umsóknarfrestur í hann út þriðjudaginn 3. október kl. 16:00. Við hvetjum þá sem luma á hugmynd sem fellur að kröfum sjóðsins að sækja um. Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna hér.
5. september 2023
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Er ferðamannastaður á landinu þínu? Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að: Öryggi ferðamanna. Náttúruvernd og uppbyggingu. Viðhaldi og ver...
25. ágúst 2023
Uppskeruhátíð á Flúðum og nágrenni laugardaginn 2. september
Fjölbreytt dagskrá á Flúðum og í sveitinni. Uppskerumessa. Markaður í félagsheimilinu, ný uppskera frá garðyrkjubændum og fleira beint frá býli. Opin handverskhús og garðar, sýningar, innlit í sveppaklefa, golfmót, lifandi tónlist, gönguferð og tilboð á þjónustustöðum. Skoðið dagskrána. Dagskráin...
14. ágúst 2023
Beint frá býli dagurinn 20. ágúst í Efstadal II
Beint frá býli fagnar 15 ára afmæli sunnudaginn 20. ágúst með viðburðum um allt land kl. 13-17. Á Suðurlandi verður afmælisviðburðurinn í Efstadal II í Bláskógabyggð. www.efstidalur.is Hér er linkur á viðburðinn
8. ágúst 2023
Grímsævintýri á Borg 12. ágúst
Vel heppnuð Verslunarmannahelgi að baki og allir komu heilir heim. Næstu helgi eru alls kyns viðburðir um allt land. Í Grímsnesinu eru það Grímsævintýri á Borg.






