5. september

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

 

Er ferðamannastaður á landinu þínu?

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Verkefni sem sett eru inn í gildandi áfangastaðaáætlun landshlutans njóta sérstakrar stigagjafar til viðbótar annarri stigagjöf.

Hafðu samband við þitt sveitarfélag ef þú vilt bæta öryggi, vernda náttúru og mannvirki eða bæta aðstöðu fyrir ferðamenn á þínu landi. Þau hjálpa þér að koma staðnum inn á Áfangastaðaáætlun Suðurlands ef við á, og leiðbeina þér um næstu skref. Þú getur líka óskað eftir samtali við Markaðsstofu Suðurlands með því að senda póst á vala@south.is

Umsóknartímabil um styrki vegna framkvæmda á árinu 2024 er frá og með 11. september 2023 til kl. 13 fimmtudaginn 19. október 2023.

Upplýsingasíða um framkvæmdasjóð ferðamannastaða: https://www.ferdamalastofa.is/is/studningur/framkvaemdasjodur-ferdamannastada/upplysingasida-um-umsoknir