30. apríl 2024
Fræðslu- og menningardagskrá í Skálholti í maí 2024
Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Ókeypis er í allar göngurnar og þið eruð öll hjartanlega velkomin. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Göngurnar hefjast allar við Skálholtskirkju kl 18:00 á miðvikudögum í maí. Göngurnar ættu að henta öllum, þær eru stuttar og á jafnsléttu að mestu. Gengið er um umhverfi kirkjunnar og taka göngurnar um 1 klst.
20. febrúar 2024
Lóan er komin: Opið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu - nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina
Nú hefur nýsköpunarsjóðurinn Lóan opnað fyrir umsóknir og er umsóknarfresturinn til og með 4. apríl 2024. <br />Nýsköpunarstyrkir Lóunnar eru hannaðir til að styðja við nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni. Heildarstyrkveiting eru 150 miljónir króna árið 2024. Styrkirnir hafa það markmið að styðja við verkefni sem beina sjónum að hugviti, þekkingu og nýrri færni til að efla byggðir og skapa ný verðmæti. Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn og getur hvert verkefni fengið styrk sem nemur allt að 20% af heildarúthlutun hvers árs.
2. febrúar 2024
Matvælasjóður opið fyrir umsóknir
Matvælasjóður hefur opnað fyrir umsóknir frá og með 1. febrúar. Umsóknarfrestur er til miðnættis 29. febrúar 2024. Matvælasjóður hefur það hlutverk að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla.
1. febrúar 2024
Janúar fréttabréf byggðaþróunarfulltrúa
Þá er janúar liðinn og febrúar gengin í garð. Mánaðarlegt fréttabréf byggðaþróunarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu er því komið út en þar er farið yfir nokkra viðburði sem áttu sér stað í mánuðinum.
1. febrúar 2024
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir vor 2024
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands. Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 5. mars 2024. Kynningarfundur um sjóðinn verður haldinn á Teams 13. febrúar kl. 12:15 og verður hann auglýstur nánar síðar.
25. janúar 2024
Landstólpin 2024- samfélagsviðurkenning á vegum Byggðastofnunar
Landstólpinn er samfélagsviðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðalun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.
23. janúar 2024
Styrkir í febrúar 2024
Opið er fyrir styrkumsóknir í sjö sjóði hjá Rannís og hvetjum við einstaklinga og fyrirtæki til að kynna sér þá vel. Einnig er alltaf hægt að hafa samband við byggðaþróunarfulltrúa Uppsveitana ef óskað er eftir ráðgjöf eða velta þarf upp hugmyndum að verkefnum á póstfangið lina@sveitir.is.
23. janúar 2024
Meiriháttar mannamót
Það var líf og fjör á ferðakaupstefnunni Mannamót Markaðsstofanna sem fram fór í á fimmtudaginn 18. janúar sl. í Kórnum í Kópavogi. Byggðaþróunarfulltrúi og fráfarandi ferðamálafulltrúi Uppsveitana voru á staðnum. Það var sannarlega gaman að sjá alla þá ferðaþjóna sem mættu úr Uppsveitunum og notuðu tímann vel við að kynna vörur sínar og þjónustu.
12. janúar 2024
Upptakturinn - tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna
Í ár stendur börnum og ungmennum í 5. - 10. bekk til boða að taka þátt í Upptaktinum sem er tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna á vegum tónlistarhússins Hörpu.
5. janúar 2024
Gulleggið 2024- vertu hluti af framtíðinni
Áttu frábæra viðskiptahugmynd? Ef svo þá er gulleggið tilvalið tækifæri fyrir þig til að láta drauminn rætast ! <br />Óskað er eftir skráningum í Gulleggið og hægt er að skrá sig hvort sem þú ert með hugmynd eða ekki.








