Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu
Upplýsingar um Suðurland á ensku www.south.is
Byggðaþróunarfulltrúi uppsveita Árnessýslu er Rakel Theodórsdóttir og hefur hún aðsetur í Aratungu í Reykholti alla virka daga nema þriðjudaga.
Þrðjudaga er hún staðsett á eftirfarandi stöðum:
- Fyrsta þriðjudag í mánuði: Árnes, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
- Annan þriðjudag í mánuði: Félagsheimilið Flúðum, Hrunamannahreppi
- Þriðja þriðjudag í mánuði: stjórnsýsluhúsið Borg, Grímsnes- og Grafningshreppur
- Fjórða þriðjudag í mánuði: UTU húsið Laugarvatni, Bláskógabyggð
Email: Rakel@sveitir.is
Sími: 480 3009
GSM: 664 3122
Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en hann veitir ráðgjöf og handleiðlu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar. Auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir því upplýsingar um styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hafa góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.
Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni eða ferðamál þá ekki hika við að hafa samband.
