Þjórsárdalur

Á þjóðveldisöld var Þjórsárdalur líflegur og grösugur dalur en árið 1104 eyddist byggðin vegna mikils gjóskufalls frá Heklugosi.Þar hafa fundist fjölmargar rústir og sú merkasta er af stórbýlinu Stöng. Stangarbærinn er fyrirmynd að Þjóðveldisbænum, tilgátuhúsi sem byggt var í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974. Náttúra Þjórsárdals er fjölbreytt og þar er fjöldi fallegra fossa, s.s. Háifoss (122m) og Hjálparfoss. Gjáin í Þjórsárdal er heillandi náttúruvin og þangað liggur göngustígur frá Stöng. Í Þjórsárdal eru góðar gönguleiðir.
Fjölbreytt ferðaþjónusta er í nágrenninu. Þjórsárstofa er í Árnesi miðlar fróðleik um sögu og náttúru í Þjórsárdal.

Þjórsárdalur er einstök náttúruperla þar sem hægt er að stoppa á einstökum stöðum eða ganga milli staða.
Gjáin, Háifoss, Þjórsárdalsskógur, Hjálparfoss, tjaldsvæði á Sandártungu, gisting og hestaferðir,  Þjóðveldisbærinn og Stöng.  Gönguleiðir:  Ganga í  Þjórsárdalsskógi ganga frá Stöng í Gjánna og frá Stöng að Háafossi