Þingvellir

Þingvellir eru friðlýstur helgistaður nátengdur sögu lands og þjóðar sem skipar sérstakan sess í hugum Íslendinga.
Þar var Alþingi stofnað árið 930 og fjölmargir meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar.
Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá UNESCO sumarið 2004.
Þar eru þingvellir meðal um 800 menningar- og náttúruminjastaða sem taldir eru hafa einstakt gildi fyrir alla heimsbyggðina.

Í fræðslumiðstöðinni á Hakinu er ný margmiðlunarsýning þar sem hægt er að fræðast um sögu og náttúru svæðisins. Boðið er upp á skipulagðar gönguferðir og fjölskyldudagskrá í Þingvallaþjóðgarði á sumrin.

Allar upplýsingar á www.thingvellir.is