Brúarhlöð

Brúarhlöð nefnist efsti hluti af 10 km löngum gljúfrum í Hvítá.
Áin hefur grafið farveg sinn í þursaberg og í því eru ýmsar
klettamyndanir og skessukatlar. Í ánni eru tveir þursabergsdrangar
sem kallast Karl og Kerling. Trébrú yfir Brúarhlöð var fyrst byggð
árið 1906 tilefni af heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til
Íslands 1907, en þá var dýrasti vegur Íslandssögunnar Kóngsvegur lagður um Uppsveitir Árnessýslu.
Konungur ásamt
föruneyti reið yfir brúna við Brúarhlöð.