6. ágúst
Uppsveitahringurinn og Tvær úr Tungunum 15.ágúst
Uppsveitahringurinn verður haldinn laugardaginn 15. ágúst.
Þá verður hlaupið og hjólað um Uppsveitirnar.
46 km, 10 km og 400 m krakkahlaup.
Sama daga er sveitahátíðin "Tvær úr Tungunum "
með fjölbreyttri skemmtun fyrir alla fjölskylduna, árlegri keppni í gröfuleikni og Dansleik í Aratungu.
Auglýsing um Uppsveitahringinn
Þátttakendur verða ræstir sem hér segir:
Kl. 10.00 - 46 km keppnishjólreiðahópur leggur af stað og endar í Reykholti
Kl. 10:30 - 10 km keppnishlauparar leggja af stað frá Flúðum og enda í Reykholti
Kl. 10:30 - 10 km hjólreiðahópur leggur af stað frá Flúðum og endar í Reykholti
Kl. 13:00 - Krakkahlaup á íþróttavellinum 400 metrar
Kl. 13:20 Verðlaunaafhending
Skráning er á www.hlaup.is, skráningarfrestur er til kl. 23:00 fimmtudaginn 13. ágúst.
Þátttökugjald er 2.000 kr., nema í 10 km hjólreiðunum þar sem gjaldið er 1.000 kr.
Frítt í krakkahlaup Keppendur geta nálgast keppnisnúmer og keppnisgögn milli kl. 16:00-18:00, föstudaginn 14. ágúst í íþróttamiðstöðinni í Reykholti. Þá er einnig hægt að nálgast keppnisgögnin milli kl. 8:00 - 9:00 að morgni keppnisdags í íþróttamiðstöðinni.
Hægt er að skrá sig í keppnina á þessum tíma en þá bætast 1.000 krónur við keppnisgjaldið.
Frítt í sund í Reykholtslaug fyrir keppendur.