11. apríl
Uppsveitabrosið afhent
Uppsveitabrosið 2015
Bros frá Uppsveitunum er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki.
Að þessu sinni var það Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands sem hlaut brosið.
Sigurður stýrir Háskólafélagi Suðurlands styrkum höndum og góð samvinna er aðalsmerki hans og starfsmanna.
Megin tilgangur félagsins er að auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags.
Fjölmörg verkefni eru í gangi hjá Háskólafélaginu m.a. þróun og uppbygging náms sem stuðlar að nýsköpun í matvælaiðnaði og í ferðaþjónustu í samstarfi við erlenda háskóla.
Þar sem brosið er óáþreifanlegt fylgir því ævinlega hlutur sem handverks- eða listamaður í Uppsveitunum býr til.
Í ár er það gripur úr listasmiðju Sólheima og listamaðurinn er Kristján Már Ólafsson.
Einnig er gaman að geta þess að logo Uppsveitabrossins er hannað af Ingunni Jónsdóttur verkefnastjóra hjá Háskólafélaginu.
Uppsveitamenn leggja áherslu á góða samvinnu og jákvæðni og það að senda út bros minnir á það.
Ásborg ferðamálafulltrúi afhenti Sigurði brosið