3. febrúar

Upplit viðburður og myndasýning

Viðburður og aðalfundur 2014

Fyrsti viðburður Upplits á þessu ári verður haldinn þriðjudaginn

18. febrúar kl. 20:00 í Efsta-Dal. Gestir kvöldsins verða:

Dorothee Lubecki menningarfulltrúi sem mun kynna Menningarráð Suðurlands, hlutverk þess í sunnlenskri menningu, starf menningarfulltrúa og verkefna- og stofnstyrki sem hægt er að sækja um hjá Menningarráði (http://sunnanmenning.is)  

og Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður sem kynnir ljósmyndavef Héraðsskjalasafns Árnesinga (http://myndsetur.is), sýnir myndir úr ljósmyndasafninu og verður búinn að taka saman einhverjar myndir úr Uppsveitum.  
Aðalfundur Upplits verður svo í beinu framhaldi.

Léttar kaffiveitingar í boði Upplits. Takið daginn frá! 

Nánari upplýsingar á www.upplit.is