14. mars

Upplit og göngumenning á Flúðum

Göngumenning
Fræðslufundur Upplits á Kaffi Grund
Göngumenning verður viðfangsefni fræðslu- og aðalfundar Upplits,
sem haldinn verður á Kaffi Grund á Flúðum,
miðvikudagskvöldið 18. mars kl. 20.00
 
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður og forseti Ferðafélags Íslands fjallar um göngur og útivist. 
Halldóra Hjörleifsdóttir fjallar um gönguferðir í Hrunamannahreppi. 
Skúli Sæland fjallar um gönguferðir í Bláskógabyggð.
Umræður um göngumenningu og gönguleiðir.

Kaffiveitingar og aðalfundarstörf.
Allir velkomnir

Upplitsstjórn