14. september

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir styrki, opið fyrir umsóknir til 5. október 2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða haustúthlutun 2021. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Nánar á www.sass.is 

https://www.sass.is/opnad-hefur-verid-fyrir-uppbyggingarsjod-sudurland-haustuthlutun-2021-2/