18. mars
Unglingurinn drepfyndinn á laugardaginn í Aratungu
Unglingurinn leikverk í Aratungu
Við komum með Unglinginn til ykkar!
Unglingurinn er frábært nýtt leikverk sem er samið og leikið af unglingum. Sýningin hefur slegið í gegn og Menningarþátturinn Djöflaeyjan kaus hana m.a sem eina af áhugaverðustu sýningum ársins og sagðist ekki hafa skemmt sér svona vel í langan tíma.
UNGLINGURINN er drepfyndið leikrit en á sama tíma mjög einlægt og tekur á öllum helstu málum sem brenna á unglingum í dag. Þó að verkið sé um unglinga er það ekki síður skemmtilegt fyrir foreldra og systkini.
Þetta er tilvalin samverustund þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og foreldrar fá smá fræðslu í unglingamálum
Laugardagur 22. mars kl. 17.00 Aratunga
Miðar fást á www.midi.is
Finnið okkur á Facebook: www.facebook.com/unglingurinn