2. september

Umferðartafir vegna fjárrekstra og rétta í Bláskógabyggð 13.-14. sept.

Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum.

Föstudaginn 13. september og laugardaginn 14. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.

Föstudaginn 13. sept

Biskupstungnabraut F35, milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30.

Skeiða- og Hrunamannavegur F30, við Gýgjarhól milli kl: 14:00 og 15:30.

Einholtsvegur F358, frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á  kvöld.

Laugardaginn 14. sept

Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi.

Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.


Fjallskilanefnd Biskupstungna.