3. september

Umferðartafir í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra 12.-13. sept.

Vinsamleg skilaboð frá fjallskilanefnd.

Tafir vegna fjárrekstra í Hrunamannahreppi 2019.
Fimmtudaginn 12.september og föstudaginn 13.september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Hrunamannhreppi vegna fjárrekstra. 
Fimmtudagurinn 12.september
Skeiða – og Hrunamannavegur F30 frá Tungufellsvegi F349 að Hrunaréttum frá kl 10:00 og fram eftir degi. 
Föstudagurinn 13.september 
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Núpstúni frá kl 13:00 fram eftir degi.
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Syðra-Langholti frá klukkan 13:00 og fram eftir degi
Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Haukholtum frá klukkan 13:00 og fram eftir degi.

Fjallskilanefnd Hrunamannahrepps.