18. mars

Tónleikar 24. mars

„Til Maríu"

Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona, Gunnar Kvaran sellóleikari og Hilmar Örn Agnarsson halda tónleika á Boðunardegi Maríu í Torfastaðakirkju sunnudaginn 24. mars nk. kl. 16 og í Stóra-Núpskirkju sama dag kl. 20.30. Á efnisskránni eru Ave Maríur eftir ýmsa höfunda ásamt verkum eftir Báru Grímsdóttur, Sigvalda Kaldalóns, C. Franck, J.S.Bach, o.fl. Gunnar Kvaran flytur stutta hugleiðingu um lífið og tónlistina á tónleikunum, sr. Egill Hallgrímsson flytur bæn og blessun í Torfastaðakirkju og kirkjukór Stóra-Núpsprestakalls syngur með á tónleikunum í Stóra-Núpskirkju. 

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.