20. nóvember

Það mun aldrei verða sátt um náttúru- og innviðagjaldið í núverandi mynd!


Á miðvikudaginn var haldinn fundur þar sem að ferðaþjónustan og atvinnulífið í Uppsveitum Árnesssýslu hafði boðað þingmenn kjördæmisins á ásamt fulltrúum úr atvinnuveganefnd og fjárlaganefnd. Á annað hundrað manns mættu á fundinn og mikill hiti var í fundarmönnum.

Þingmenn stjórnarmeirihlutans fengu krefjandi spurningar og beindist hiti fundarfólks sér í lagi að þeim. Var óskað eftir skýrum svörum hvers vegna verið væri að leggja náttúru og innviðaskatt aðeins á í einu sveitarfélagi á landinu, Bláskógabyggð og einnig var óskað eftir skýrum svörum frá alþingismönnum af hverju væri ekki búið að gera áhrifamat á þessa skattlagningu áður en málið væri lagt fyrir alþingi.

Fram kom í máli fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks að þeir styddu það að stjórnvöld létu vinna slíkt mat en fulltrúar Viðreisnar, Flokks fólksins og Samfylkingar töldu að ekki þyrfti slík gögn heldur væri málið faglega unnið hjá ráðherra og ríkisstjórn. Vakti þetta mikla undrun fundarmanna að þessir aðilar teldu málið vera faglega unnið þegar ekki væri búið að meta hvaða áhrif það hefði að hækka skatta á þessu svæði, eina svæðinu á landinu þar sem leggja á á viðkomandi skatt.

Knútur Ármann eigandi Friðheima fór vel yfir þau áhrif sem lagasetning þessi gæti haft á rekstur fyrirtækja á Gullna hringnum, samdrátt í tekjum, hagræðingu og mögulegar uppsagnir. Sagði Knútur að “Aldrei yrði sátt um þessa útfærslu” sem hefði verið kynnt í frumvarpinu. Enda ósanngjörn atlaga að atvinnulífi sveitarinnar sem vekur spurningar um jafnræði og samkeppnisstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu.

Þar sem einungis einn þingmaður stjórnar meirihlutans úr kjördæminu mætti var Sandra Sigurðardóttir þingmaður Viðreisnar spurð að því af fundarmönnum hvort hún myndi ætla að styðja fólkið í kjördæminu og ferðaþjónustu fyrirtækin eða fara eftir þeirri línu sem að ríkisstjórnin væri búin að leggja henni. Svaraði Sandra því til að hún myndi greiða atkvæði með frumvarpinu eins og það kæmi fyrir. Vakti svar hennar mikinn kurr í hópnum og á samtölum fundarmanna eftir fundinn mátti skynja mikil vonbrigði með afstöðu þingmanns kjördæmisins sem auðsjáanlega ætlar ekki að standa með fyrirtækjum og fólki á svæðinu.

Ljóst var á svörum að fulltrúar minnihlutans á þingi muni ætla að standa þétt við bakið á ferðaþjónustunni en minni stuðning mátti finna fyrir hjá fulltrúum ríkisstjórnarinnar sem vitnuðu sífellt í greinargerðir og héldu því fram að skattlagning upp á 6-7 milljarða á ári á eitt sveitarfélag, Bláskógabyggð myndi ekki hafa áhrif á komur ferðamanna á svæðið.