25. mars
Opnunarhátíð Leyndardómanna
Um 200 leyndardómsviðburðir á Leyndardómum Suðurlands
Föstudaginn 28. mars k. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sem standa að átakinu bjóða frítt í Strætó alla þessa daga frá Reykjavík um allt Suðurland. Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda.
Allir upplýsingar um viðburði er að finna á www.sudurland.is
og með því að klikka hér (og þá birtist pfd skjalið í heild sinni) sjá hvað er í boði.
Góða skemmtun á Leyndardómum Suðurlands 2014.