14. september
Opinn fundur á Hótel Geysi 14.9. kl. 17:00
"Fulltrúar Umhverfisstofnunar og Bláskógabyggðar boða til opins kynningarfundar vegna gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Geysissvæðið.
Fundurinn fer fram þriðjudaginn 14. september frá klukkan 17:00-18:00 á Hótel Geysi.
Geysissvæðið var friðlýst sem náttúruvætti þann 17. júní 2020.
Svæðið er eitt þekktasta goshverasvæði jarðar. Fjölmargir hverir og laugar eru á svæðinu og eru goshverirnir Geysir og Strokkur þeirra þekktastir. Á svæðinu er einnig hverahrúður á stóru samfelldu svæði.
Örnefnið Geysir hefur gefið goshverum nafn á erlendum tungumálum auk þess sem hverahrúður er oft kallað „geyserite“ á erlendum tungumálum.
Upp af hverasvæðinu rís Laugarfell (187 m) sem er innskot úr líparíti þar sem ýmsar jarðmyndanir er að finna.
Á verndarsvæðinu er að finna plöntutegundina laugadeplu sem skráð hefur verið á válista sem tegund í nokkurri hættu. "