13. nóvember

Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt

Nýsköpunarhátíðin Uppspretta Suðurlands fór fram með pompi og prakt á Selfossi þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, stjórnvöld, sveitarfélög og stoðkerfi komu saman til að ræða framtíð verðmætasköpunar í landshlutanum. Hápunktur hátíðarinnar var formleg kynning á fyrstu sameiginlegu Nýsköpunarstefnu Suðurlands, sem unnin hefur verið af Háskólafélagi Suðurlands sem áhersluverkefni á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Hátíðin sýndi glöggt þann mikla drifkraft sem einkennir sunnlenskt atvinnulíf.

Margrét Polly Hansen, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands, kynnti Nýsköpunarstefnu Suðurlands. Stefnan byggir á þremur grunnstoðum: viðhorfi, fjármagni og innviðum. Hún inniheldur átta raunhæfar aðgerðir sem miða að því að byggja upp öflugra nýsköpunarumhverfi á Suðurlandi. Meðal aðgerða er uppbygging miðstöðvar nýsköpunar og atvinnuþróunar á Suðurlandi, aukin nýting á styrkjum, efling hringrásarhagkerfisins og verkfærakista fyrir sveitarfélög til að styðja við frumkvöðla á fyrstu stigum.

Frekari upplýsingar má finna á bak við eftirfarandi slóðir

Frekari fréttir af Nýsköpunarhátíðinni Uppspretta Suðurlands má finna hér