19. maí
Minkabændur í Mön bjóða heim
Minkabændur í Mön bjóða heim.
Hjónin Katrín Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson í Mön í Skeiða og Gnúpverjahreppi ætla að bjóða almenningi í heimsókn í minkabúið sitt laugardaginn 24. maí milli kl. 10 og 17.
Margir muna eftir opna deginum í Mön í fyrra en þá lögðu hundruð manna leið sína þangað og nutu eftirminnilegs dags.
Margir fara í sveitina um sauðburðinn en fáir hafa komist í tæri við litla minkahvolpa. Got hefur verið í fullum gangi undanfarnar vikur og því tilvalið fyrir fjölskyldur að koma og fá að kynnast þessu ungviði og jafnvel fá að halda á litlu krílunum.
Hellt verður á könnuna og bændur veita upplýsingar um búskapinn og starfsemina.
Fá skinn eru eins eftirsótt og minkaskinn en á staðnum verða skartgripir og aðrir munir úr minkaskinni og roði til sýnis og sölu sem Katrín hannar og framleiðir sjálf.
Einnig verður til sölu smyrsl úr minkafitu og íslenskum jurtum en minkafita er einstaklega græðandi.
Eitthvað verður einnig til afþreyingar fyrir börnin og getraun fyrir alla.
Þau Katrín og Stefán vonast til að sem flestir leggi leið sína í Mön og sjái þar eitthvað nýtt, skemmtilegt og fróðlegt.