25. janúar

Landstólpin 2024- samfélagsviðurkenning á vegum Byggðastofnunar

Landstólpinn er samfélagsviðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðalun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.

Byggðastofnun er að óskar eftir tilnefningum einstaklinga sem fólk telur að eigi að hljóta titilill Landstópinn 2024. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast, en nauðsýnlegt er að rökstuðningur berist með tilnefningu. 

Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:

  • Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
  • Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði og málefni innan landsbyggðanna
  • Styrkt nærumhverfið, ýmist með aukinni samstöðu íbúa, atvinnutækifærum, aukinni afþreyingu, menningu, þjónustu, verðmætasköpun eða tækifærum af öðru tagi
  • Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • Stuðlað að jákvæðum áhrifum efnahagslegra, samfélagslegra og/eða umhverfislegra þátta

 Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

Tillögur sendist á netfangið: helga@byggdastofnun.is eða andri@byggdastofnun.is

Frestur til að koma tillögum til skila rennur út föstudaginn 1. mars 2024 

Frekari upplýsingar um Landstólpann 2024 má finna hér.