30. apríl

Fræðslu- og menningardagskrá í Skálholti í maí 2024

Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Ókeypis er í allar göngurnar og þið eruð öll hjartanlega velkomin. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Göngurnar hefjast allar við Skálholtskirkju kl 18:00 á miðvikudögum í maí. Göngurnar ættu að henta öllum, þær eru stuttar og á jafnsléttu að mestu. Gengið er um umhverfi kirkjunnar og taka göngurnar um 1 klst.

 8. maí kl 18:00 Þorláksleið vígð

Kristján Björnsson vígslubiskup vígir Þorláksleið en nú er búið að varða leiðina með skiltum. Gangan hefst við kirkjuna og verður gengið að Stekkatúni og tilbaka, gangan tekur um 1, 5 klst í heildina. 

15. maí kl 18:00 Ragnheiðarganga með Friðrik Erlingssyni

Friðrik Erlingsson þekkir sögu Ragnheiðar Brynjólfsdóttur einna best og mun leiða gönguna og segja söguna um ástir og örlög Ragnheiðar. Gangan hefst við kirkjuna og gengið er um nánasta umhverfi hennar.

22. maí kl 18:00 Söguganga með Bjarna Harðar

Bjarni Harðar gengur um Skálholtsstað og segir sögur eins og honum einum er lagið. Gengið er frá kirkjunni og um Skálholtsstað og farið yfir ýmsar sögur og sögupersónur úr Skálholti.

29. maí kl 18:00 „Að öllu tilliti merkisfrú“ – Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú

Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur hjá Landsbókasafni leiðir gesti í sannleikann um Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú í Skálholti. Fræðsluerindið fer fram í kirkjunni og farið verður í stutta göngu á eftir á safnið og út á fornleifasvæðið.

Allar göngurnar eru ókeypis og þið eruð öll hjartanlega velkomin.

Veitingastaðurinn Hvönn er nú opinn alla daga og öll kvöld og um að gera að kynna sér tilboð og fá sér veitingar í tengslum við göngurnar.

 Nánari upplýsingar um viðburði í Skálholti á nýrri heimasíðu Skálholtsstaðar:  skalholt.is