29. júní

Englar og menn

Hin árlega tónlistarhátíð, Englar og menn í Strandarkirkju hefst sunnudaginn 2. júlí nk. og stendur yfir í júlímánuði með tónleikum á sunnudögum kl. 14.

Á fyrstu tónleikunum koma fram Björg Þórhallsdóttir sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti.
Yfirskrift tónleikanna er ,,Himininn er nálægt þér" en á efnisskránni eru m.a. þjóðlög eftir Benjamin Britten ásamt innlendum og erlendum sönglögum  eftir m.a. Gylfa Þ. Gíslason, Tryggva M. Baldvinsson, Þórunni Guðmundsdóttur, Inga T. Lárusson, Atla Heimi Sveinsson o.fl. ásamt þekktum perlum úr heimi tónbókmenntanna. Á tónleikunum verður einnig frumflutt lag hátíðarinnar 2023 eftir Georg Kára Hilmarsson tónskáld við ljóð Kristjáns Vals Ingólfssonar f.v. vígslubiskup.

 Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Björg Þórhallsdóttir og aðgangseyrir er kr. 3.500.

Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlennskra sveitarfélaga, Tónlistarsjóði og Tónlistarsjóði kirkjunnar og STEFs .