11. júní
Afmælishátíð Hrunamannahrepps laugardaginn 13. júní 2026
Núna er tími til að fagna!
Hrunamannahreppur heldur upp á 1150 ára afmæli sitt þann 13. júní 2026.
Frá landnámi til framtíðar
Föstudagur 12. Júní
12:00 – 23:00 Fjör á Flúðum - opnun Grundarinnar. Sæsabar hefur lokað en nú opnar Grundin með pompi og pragt. Hoppukastali um daginn og Hlynur Snær trúdadúr um kvöldið.
Laugardagur 13 júní Íbúar Hrunamannahrepps draga fána að húni og fagna deginum.
11:30 Sveitarstjórn og afmælisnefndin taka á móti forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og sýna henni valda staði á Flúðum.
13:15 Forseti mætir að félagsheimilinu.
Allir velkomnir og börn sérstaklega til að hitta forsetann.
Þeir sem hafa tök á eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi.
13:30 Hátíðardagskrá hefst í Félagsheimili Hrunamanna.
Kynnir er Óskar Snorri Óskarsson.
Karlakór Hreppamanna flytur nokkur vel valin lög.
Ávarp oddvita, Jóns Bjarnasonar.
Ávarp forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur.
Bjarni Harðarson - að vera nágranni Hrunamanna.
Sr. Óskar H. Óskarsson - kostir þess að vera Hrunamaður.
15:00 Að lokinni hátíðardagskrá er öllum boðið að gæða sér á veitingum að hætti Hrunamanna.
15:00 “Það gleymdist að taka með fress.” Í Bókasafninu.
Dagskrá fyrir börn um landnám í Hrunamannahreppi
Sagan er sögð með myndateppum sem Gudrun Kloes saumar og hannar og lýsa landnámi og landslagi í Hrunamannahreppi út frá sjónarhorni kattar.
16:00 Söguskilti afhjúpuð í miðbæ Flúða.
16:30 Ullarverið – skemmtilegir tónleikar með Hróðmari Sigurðssyni og Ingibjörgu Turchi sem leika frumsamda jazzmúsík. Ókeypis aðgangur.
20:00 Félagsheimilið - Hrunatónar í félagsheimilinu
Tónleikar og skemmtun - ókeypis inn, veitingar seldar á staðnum.
Hrunamannahreppur hefur alið marga topp listamenn sem sumir hafa flutt annað en aðrir búa hér enn.
Á þessum tónleikum verður farið yfir örlítinn hluta þeirra í söng og tónlist.
Verið öll velkomin og ókeypis inn.
Aðrir viðburðir á laugardegi:
12:00 – 17:00 Víkingaþorp í Lækjargarðinum. Félag víkinga, Rimmugýgur, reisir þorp úr tjöldum og verða þau með markað og vopnaskak að hætti landnema.
12:30 Sögustund
13:30 Vopnaskak
14:30 Víkingaleikir
15:30 Vopnaskak
16:30 Hringdans
12:00 – 17:00 Aparóla, hoppukastalar og leiktæki í Lækjargarðinum.
10:00 – 14:00 Secret Lagoon býður íbúa sveitarfélagsins sérstaklega velkomna í tilefni af 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps. Milli kl. 10:00 og 14:00 þann dag fá þeir sem gefa upp lykilorðið „HRUNAMANNAHREPPUR“ frían aðgang að lóninu.
Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd foreldra/forráðamanns.
10:00 – 12:00 Hrunalaug - opið hús. Kynning á uppbyggingunni sem átt hefur sér stað í og við Hrunalaug síðustu ár. Heitt á könnunni og allir velkomnir að rölta um svæðið.
10:00 – 14:00 Apótek Suðurlands – aukaopnun að Hrunamannavegi 3.
20% afsláttur af fjölda vara á föstudag og laugardag.
7:00-18:30 Sólskinsbúðin verður með pop-up tómataþema. Smakk og fjölbreytt úrval af matvöru sem unnin er úr gómsætum íslenskum tómötum.
11:00- 15:00 Opið hús í nýbyggðum raðhúsum að Loðmundartanga 13-17 á Flúðum. Endilega lítið við og kynnið ykkur góðan búsetukost á Flúðum.
15:00-17:00 Minilik - veitingastaður verður með opna kaffiserímónía að eþíópísum sið. Annars hefðbundin opnun laugardag og sunnudag.
Sunnudagur 14. júní
Kl. 11:00 “Það gleymdist að taka með fress.” í Bókasafninu.
Dagskrá fyrir börn um landnám í Hrunamannahreppi
Sagan er sögð með myndateppum sem Gudrun Kloes saumar og hannar og lýsa landnámi og landslagi í Hrunamannahreppi út frá sjónarhorni kattar.
14:00 Guðsþjónusta í Tungufellskirkju – Kirkjukaffi hjá ábúendum að Tungufelli að messu lokinni. Verið öll velkomin.
13.00–16.30 Golfklúbburinn Flúðum - golfþrautir með vöffluverðlaunum.
Settar verða upp þrjár stöðvar þar sem félagar úr klúbbnum kynna ýmislegt sem tengist golfi. Áhugasamir fá afhent kort og safna einum límmiða á hverri stöð. Í lokin er svo hægt að skipta kortinu út fyrir vöfflu með sultu og rjóma í Kaffi-Sel á milli kl. 14.00 og 17.00 þennan sama dag.
Alla helgina:
Kaffi Sel, veitingastaður við golfvöllinn býður 1.150,- kr afslátt af öllum pizzum laugardag og sunnudag vegan afmælis Hrunamannahrepps.
Ullarverið er með opið laugardag og sunnudag milli kl. 11:00 og 18:00. Kynning á nýju Íslensku ullargarni, ull úr Hrunamannahreppi. Framleitt af Ullarverinu.
Hús minninganna, Suðurbrún 7, á Flúðum er opið laugardag: 10-17 og sunnudag: 12-16. Einstakt safn muna sem rifja upp gamlar og góðar minningar.
15:00-17:00 Minilik - veitingastaður verður með opna kaffiserímóníu að eþíópískum sið. Annars hefðbundin opnun laugardag og sunnudag.
Spennandi ratleikur fyrir börn hefur verið settur upp af VISS á Flúðum í tilefni af afmælishátíð Hrunamannahrepps. Leitið að víkingaskjöldunum sem faldir eru á Högnastaðaásnum og í Lækjargarðinum og spreytið ykkur á vísbendingum.
