Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu

Upplýsingar um Suðurland á ensku www.south.is
 

Byggðaþróunarfulltrúi uppsveita Árnessýslu 
Lína Björg Tryggvadóttir hefur aðsetur í Aratungu.

Email: lina@sveitir.is
Sími: 480 3009
GSM: 8597870

Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en hann veitir ráðgjöf og handleiðlu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar. Auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir því upplýsingar um styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hafa góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.

Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni eða ferðamál  þá hafið samband.