7. október
Vinnustofa með ráðgjafa varðandi umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands
Komdu á vinnustofu þar sem þú færð innblástur, hagnýta fræðslu og aðstoð við að móta hugmyndina þína og kanna hvernig hún fellur að áherslum sjóðsins.
Byggðaþróunarfulltrúar Uppsveita Árnessýslu, neðri hluta Árnessýslu og Rangárþings verða á staðnum og aðstoða þátttakendur við að rýna verkefnin sín og undirbúa sterkari umsókn.
- Dagur: fimmtudaguirnn 15. október
- Tími: 09:00 – 11:00
- Staðsetning: Bankinn, Austurvegi 20, Selfossi – 3. hæð
Komdu með hugmyndina – hvort sem hún er fullmótuð eða rétt að byrja að taka á sig mynd – og nýttu tækifærið til að fá ráðgjöf áður en þú sendir inn umsókn.
Frekari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Suðurlands má finna með því að smella hér.
![]() |
![]() |
![]() |
|
Rakel Theodórsdóttir Byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu Netfang: rakel@sveitir.is Sími: 664 3122 |
Harpa Jónsdóttir Byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings Netfang: harpa@hvolsvollur.is Sími: 488 4200 |
Margrét Pollý Hansen Byggðaþróunarfulltrúi Neðri hluta Árnessýslu Netfang: polly@hfsu.is Sími: 560 2040 |



