27. maí
Reykholt fagnaði 100 ára afmæli með glæsibrag
Það var sannkölluð hátíðarstemning í Reykholti í Bláskógabyggð þann 20. maí síðastliðinn þegar íbúar og gestir komu saman til að fagna 100 ára afmæli þorpsins. Veðrið lék við gesti allan daginn og setti sannarlega svip sinn á vel heppnuð og glæsileg hátíðarhöld.
Í tilefni tímamótanna tóku nokkrir íbúar höndum saman og unnu að gerð fræðsluskilta um sögu Reykholts og þá öflugu garðyrkju sem hefur mótað samfélagið í gegnum tíðina. Skiltin, sem staðsett eru á horni Skólabrautar og Sólbrautar, voru formlega afhjúpuð við hátíðlega athöfn og vöktu mikla athygli gesta.
Að afhjúpun lokinni var boðið upp á afmælis-sögugöngu þar sem þátttakendur gengu um helstu kennileiti þorpsins, meðal annars að Reykholtshver, Reykholtsskóla og Aratungu. Leiðsögumenn sögðu frá uppbyggingu samfélagsins, frumherjunum sem ruddu brautina og þeirri einstöku sögu sem býr að baki Reykholti. Göngunni lauk með notalegum veitingum í Aratungu þar sem gestir nutu samverunnar í góðu veðri.
Gjafagjörningur sem lagði grunn að samfélaginu
Saga Reykholts hófst formlega þann 20. maí árið 1926 þegar Jón Halldórsson vinnumaður gaf Biskupstungnahreppi land og fjármuni til byggingar barnaskóla við Reykholtshver í landi Stóra-Fljóts. Þá voru engir mannabústaðir í Reykholti, en á næstu árum hófst uppbygging sem lagði grunninn að því samfélagi sem þar stendur í dag.
Öflugt samfélag og blómleg garðyrkja
Á þessum hundrað árum hefur Reykholt þróast úr litlu frumkvöðlasamfélagi í eitt öflugasta ylræktarsvæði landsins. Heita vatnið hefur verið lífæð byggðarinnar og skapað forsendur fyrir öfluga atvinnustarfsemi og fjölbreytt mannlíf. Í dag búa tæplega 500 manns í Reykholti og samfélagið er sannkallað fjölmenningarsamfélag þar sem menning og mannlíf blómstrar.
Reykholt státar einnig af öflugum fyrirtækjum á sviði garðyrkju. Þar má nefna Friðheima, stærstu tómataræktunarstöð landsins, Espiflöt sem er stærst í ræktun afskorinna blóma, Gufuhlíð sem leiðir í gúrkuræktun, Jarðaberjaland sem er stærst í framleiðslu jarðarberja og Kvistabæ sem er stærsti skógarplöntuframleiðandi á Suðurlandi.
Kraftur, samheldni og framtíðarsýn
Afmælishátíðin tókst einstaklega vel og sýndi með skýrum hætti þann kraft, samheldni og framtíðarsýn sem einkennir Reykholt og íbúa þess. Gestir eru hvattir til að gera sér ferð að „Horninu“ og kynna sér söguna og mannlífið sem þar blómstrar.







