10. júní
Góðar leiðir - Ný merkingahandbók og handbók um náttúrustíga
Það er ánægjulegt að geta kynnt til sögunnar vefinn góðar leiðir www.godarleidir.is
Þar er að finna mikilvægar leiðbeiningar um merkingar og stígagerð.
Forsaga
"Sem hluta af framkvæmd Landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, sem Alþingi samþykkti árið 2018, skipaði umhverfis- og auðlindaráðherra samstarfshóp um eflingu fagþekkingar" ...... "Í hópnum eru fulltrúar frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Umhverfisstofnun, Ferðamálastofu, Þjóðgarðinum á Þingvöllum, Vatnajökulsþjóðgarði, Landgræðslunni, Minjastofnun, Þjóðminjasafni Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Skógræktinni og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs".
Handbækur og leiðbeiningar
"Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fékk það hlutverk innan samstarfshópsins að leiða vinnu við að uppfæra merkingahandbók frá árinu 2011 og vera ráðgjafi fyrir önnur verkefni hópsins. Vinna samstarfshópsins leiddi af sér fjölbreytt og ólík verkefni en helst ber að nefna þrjár handbækur sem verða aðgengilegar á vefnum godarleidir.is. Þetta eru:
- Vegrún, merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum
- Leiðbeiningar um gerð náttúrustíga
- Skipulagsleiðbeiningar fyrir ferðamannastaði (aðgengileg í júní).
Auk handbóka leiddi vinna samstarfshóp af sér námskeið sem tengjast skipulagi, handverki og uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri aðila."
(www.ferdamalastofa.is)