26. júní

Fyrsta úthlutun úr Hörpusjóðnum!

Á aðalfundi SASS í Þorlákshöfn í gær var fyrsti styrkurinn úr Hörpusjóðnum afhentur. Sjóðurinn var stofnaður af SASS til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur og er markmið hans að styðja við inngildingu og samheldni nýrra íbúa á Suðurlandi.

Alls bárust 13 umsóknir en það var verkefnið „Voices of Vík: Language, Culture & Community“ undir forystu Ann Peters sem hlaut styrkinn sem nemur 1.000.000 kr.

Frekari upplýsingar má lesa á vef Samtaka Sunnlenskra Sveitarfélaga