17. mars

Frumframleiðendur og ferðaþjónustan hittust á Flúðum – samstarf og styttri leið frá býli á borð

Þriðjudaginn 10. mars stóðu Slow Food samtökin á Íslandi og sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu, með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Suðurlands, fyrir stefnumóti frumframleiðenda og ferðaþjónustunnar á Flúðum. Markmið viðburðarins var að efla tengsl, stytta virðiskeðjuna og tryggja að gestir á svæðinu geti notið matvæla beint frá framleiðendum á fjölmörgum veitingastöðum, hótelum og mötuneytum í héraðinu.

Viðburðurinn fór fram í Félagsheimili Hrunamanna þar sem 18 framleiðendur kynntu vörur sínar fyrir gestum. Um 100 manns sóttu viðburðinn, sem hófst á framsöguerindum.

Knútur Rafn Ármann frá Friðheimum fjallaði um matarminjagripi og hvernig megi nýta vannýtt hráefni í vörur sem ferðamenn geta tekið með sér heim. „Þannig verður hver heimsókn dýrmætari og sagan um svæðið lifir áfram víðar,“ sagði Knútur.

Óli Finnsson í Heiðmörk ræddi mikilvægi fullnýtingar afurða og ávinning góðs samstarfs í virðiskeðjunni. Hann nefndi sérstaklega „Helvítis eldpiparsulturnar“, sem nýta hráefni frá honum og hafa orðið vinsælar. Þá kynnti Tjörvi Bjarnason viðskiptamódel Matlands, matarmarkaðstorgs á netinu, og hvernig sjálfsafgreiðslustöðvar geti gert dreifingu ferskra afurða skilvirkari.

Ómetanlegt fyrir veitingafólk að vita hvaðan maturinn kemur

Dóra Svavarsdóttir frá Slow Food á Íslandi lagði áherslu á mikilvægi slíkra viðburða:
„Það skiptir sköpum að gera sýnilegt hvað svæðið hefur upp á að bjóða. Fyrir fólk í veitingageiranum og ferðaþjónustunni er það ómetanlegt að geta með stolti sagt hvaðan hráefnið kemur og hvert er fólkið og sagan á bakvið réttina sem bornir eru fram.“

Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveitanna, bætti við:
„Við höfum lengi talað um sjálfbærni og mikilvægi fæðuöryggis þjóðarinnar. Nú sem aldrei fyrr erum við að sjá hversu mikilvægur þáttur þetta er sérstaklega út frá heimsmálunum. Það er því hagur okkar allra sem störfum og búum í Uppsveitunum að versla í heimabyggð og með svona viðburði opnum við á aukið samtal og sýnileika þeirra aðila sem eru á bak við þessa blómlegu matarkistu sem Uppsveitirnar eru.“

Vilja sjá reglulega viðburði um allt land

Að lokum sagði Dóra að það sé von Slow Food samtakanna að slík stefnumót verði haldin reglulega og víðar um land. „Við sjáum mikinn ávinning í því að byggja upp persónuleg tengsl, efla samvinnu og tryggja að íslenskt hráefni fái þann sess sem það á skilið í ferðaþjónustu og matarmenningu landsins.“