20. ágúst
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Hinn árlegi „Beint frá býli“-dagur verður haldinn um land allt þann 23. ágúst næstkomandi. Á Suðurlandi verður blásið til tveggja stórra fjölskylduhátíða og matarmarkaða þar sem sunnlenskir smáframleiðendur og heimavinnsluaðilar kynna og selja sínar vörur. Hátíðarhöldin fara fram á bæjunum Bjálmholti í Rangárþingi ytra og Hólmi í Hornafirði.
Uppbygging í matvælavinnslu á Suðurlandi skapar verðmæti, atvinnu, laðar ferðamenn að og styrkir sjálfbærni og ímynd landshlutans. Viðburðir á borð við Beint frá býli-daginn eru mikilvægur liður í því að tengja neytendur beint við uppruna matarins.
Stórhugur og ný gestastofa í Bjálmholti
Á bænum Bjálmholti, þar sem Eimverk (Flóki viskí) er til húsa, verður boðið upp á glæsilegan matarmarkað og fjölskylduhátíð. Gestir geta kynnt sér starfsemi bæjarins þar sem landnámshænur ganga frjálsar um og kornakrar umlykja svæðið, en byggið af akrinum er einmitt nýtt í viskíframleiðsluna. Boðið verður upp á spennandi skoðunarferðir um kornþurrkunina og viskíkjallarann.
Mikil uppbygging stendur nú yfir í Bjálmholti þar sem verið er að reisa 1.500 fermetra byggingu sem mun hýsa bæði nýja eimingarverksmiðju og glæsilega gestastofu ásamt verslun. Viðburðurinn á Beint frá býli deginum er fyrsta skrefið í að kynna þessa spennandi framtíðaruppbyggingu fyrir heimamönnum á Suðurlandi.
Fjölskyldustemning og tónlist á Hólmi
Á bænum Hólmi, sem þekktur er fyrir veitingastaðinn Jón Ríka, verður einnig fjölskylduhátíð þar sem smáframleiðendur úr landshlutanum mæta til leiks. Auk veitingasölu gefst gestum tækifæri á að skoða áhugavert hljóðfærasafn á staðnum.
Hólmur er sannkölluð paradís fyrir fjölskyldufólk. Á bænum eru hænur, endur, sauðfé, hundur og köttur, ásamt náttúrulegum leikföngum fyrir börnin. Fyrir náttúruunnendur er tilvalið að ganga yfir brú að fallegri tjörn með fjölbreyttu fuglalífi, eða nýta sér áhugaverðar gönguleiðir í stórbrotnu umhverfi í nágrenni bæjarins.
Rekjanleiki og gæði í forgrunni hjá Beint frá býli
Félagið Beint frá býli (BFB) hefur allt frá stofnun árið 2008 unnið ötullega að því að hvetja til heimavinnslu og standa vörð um hagsmuni bænda sem selja afurðir sínar beint til neytenda. Meginmarkmið félagsins er að tryggja neytendum gæðavörur þar sem öryggi og rekjanleiki eru í fyrirrúmi, ásamt því að hvetja til varðveislu hefðbundinna framleiðsluaðferða og kynningar á svæðisbundnum hráefnum. Frá árinu 2022 hefur félagið verið aðildarfélag Samtaka smáframleiðenda matvæla (SSFM).
SASS hvetur Sunnlendinga og aðra landsmenn til að fjölmenna, kynna sér frábært framtak heimamanna og eiga skemmtilegan dag saman á Suðurlandi þann 23. ágúst.
