8. október

Áhyggjur af áhrifum fyrirhugaðrar gjaldtöku á ferðaþjónustu í Uppsveitum

Fulltrúar sveitarfélaga og ferðaþjónustunnar kalla eftir áhrifamati og raunverulegu samráði vegna áforma um gjaldtöku á Gullna hringnum og hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Á fundi sem byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu boðaði til komu fram miklar áhyggjur af fyrirhugaðri gjaldtöku á þremur áfangastöðum á Gullna hringnum og hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Í umræðum var lögð áhersla á að breytingarnar gætu haft víðtæk áhrif á rekstur fyrirtækja, atvinnulíf og áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.

Á fundinum tóku meðal annars til máls fulltrúar sveitarfélaga í Uppsveitum, Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Markaðsstofu Suðurlands og ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu.

Gjaldtaka á afmörkuðu svæði vekur áhyggjur

Fundarmenn gagnrýndu að fyrirhuguð gjaldtaka næði sérstaklega til áfangastaða á Gullna hringnum. Bent var á að öflug ferðaþjónusta á svæðinu hefði byggst upp með fjárfestingum, samstarfi og markvissri þróun þjónustu og ferðaleiða. Breytingar á aðsókn gætu því haft áhrif langt út fyrir þá staði þar sem gjaldið yrði innheimt.

Í umræðum var einnig bent á að ferðamenn hefðu takmarkað fjármagn til ráðstöfunar og aukin gjaldtaka gæti dregið úr útgjöldum þeirra til gistingar, veitinga, afþreyingar og verslunar í nærsamfélaginu.

Framkvæmdastjóri SAF gerði grein fyrir aðkomu samtakanna að viðræðum við stjórnvöld og áréttaði að samtökin væru andvíg fyrirliggjandi áformum. Hann hafnaði því jafnframt að SAF hefði óskað eftir því að gjaldtakan yrði bundin við Gullna hringinn.

Hækkun á baðlón gæti dregið úr fjárfestingu

Sérstakar áhyggjur komu fram af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Fundarmenn töldu hana geta dregið úr fjárfestingu og veikt forsendur áframhaldandi uppbyggingar á landsbyggðinni.

Í umræðum var lögð áhersla á afleidd störf í tengslum við baðlón. Framkvæmdastjóri Fontana lýsti því að þegar fyrirtækið lokaði tímabundið vegna framkvæmda hefði samdráttur einnig orðið í gistingu, veitingum og verslun á Laugarvatni. Sú reynsla sýndi hversu náið rekstur fyrirtækja í nærsamfélaginu væri samtvinnaður.

Einnig var bent á að baðlón væru mikilvægur hluti af vellíðunarferðamennsku og þeirri þjónustu sem laðar að ferðamenn sem nýta fjölbreytt framboð á svæðinu.

Kalla eftir gögnum og raunverulegu samráði

Fundarmenn kölluðu eftir heildstæðu áhrifamati á fyrirhugaðar breytingar. Fram kom gagnrýni á að fullnægjandi greiningar á áhrifum gjaldtökunnar og skattahækkunarinnar hefðu ekki verið kynntar.

Rætt var um að skoða þyrfti aðrar útfærslur, meðal annars gjaldtöku sem næði til fleiri áfangastaða eða þjóðgarða, ef stjórnvöld héldu áformunum til streitu. Ekki kom fram ein sameiginleg tillaga um slíka útfærslu, en rík áhersla var lögð á að fallið yrði frá hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Í lok fundar var hvatt til þess að sveitarfélög, fyrirtæki og samtök skiluðu rökstuddum umsögnum og kæmu sjónarmiðum sínum á framfæri við stjórnvöld. Jafnframt var lagt til að sveitarfélögin óskuðu eftir fundi með forsætis- og fjármálaráðherra.

Skýr krafa kom fram um að ákvarðanir um framtíðargjaldtöku byggðust á gögnum, mati á áhrifum á nærsamfélög og raunverulegu samráði við þá sem standa að atvinnu og uppbyggingu á svæðinu.