20. febrúar

My Vote - My voice / Mitt Atkvæði - Mín Rödd

----- íslenska neðar ----

Are you an immigrant resident living in Laugarvatn, Reykholt, Laugarás, Flúðir, Borg, Árnes, Brautarholt or the surrounding areas (the municipalities of Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur)?

Do you know if you have the right to vote in the upcoming local election (sveitarstjórnarkosningar in Icelandic)16 May 2026?

If you have lived in Iceland for more than 3 consecutive years you have the right to vote!

Therefore, we want to invite you to take part in a Democratic Engagement Workshop on the 21 and 22 March to learn more about your democratic rights as an immigrant

The goal is to create an opportunity for immigrant residents in Iceland to learn about their democratic rights and duties, the political system in Iceland, the role of your municipality, how you can engage and influence issues, the upcoming elections in May, how voting takes place and more.

The workshop will take place Saturday and Sunday 21 and 22 March in Reykholt, Bláskógabyggð. You can register for one day or both, it is up to you. The workshop is free of charge including transportation from nearest village and lunch on Saturday.

Please presh here for more information and register

Hope to see you as your voice and your vote matter.

The project is supported by the Ministry of Social Affairs and our municipalities.

---------------------------

Mitt Atkvæði – Mín Rödd

Ertu einstaklingur af erlendum uppruna búsettur á Laugarvatni, Reykholti, Laugarási, Flúðum, Borg, Árnesi, Brautarholti eða þar í kring ( sveitarfélögin Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur)?

Veistu hvort þú hefur rétt til að kjósa í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026?

Ef þú hefur verið búsett(ur) á Íslandi í 3 ár eða lengur þá hefur þú rétt til að kjósa!

Hefur þú áhuga á að fá fræðslu um lýðræðisleg réttindi þín, hlutverk sveitarstjórna, hvernig þú getur haft áhrif á mál í þínu sveitarfélagi, sveitarstjórnarkosningarnar og hvernig þær fara fram og hvernig þú getur almennt tekið þátt í lýðræðinu á Íslandi?

Helgina 21. og 22. mars verður haldin ókeypis vinnustofa í Reykholti í Bláskógabyggð um kosningaréttindi íbúa af erlendum uppruna og tengd málefni.

Þar færðu tækifæri til að hitta aðra íbúa, ræða mál við þá og fræðast. Vinnustofan er ókeypis og þú getur valið að taka þátt báða dagana eða eingöngu annan daginn. Boðið verður upp á gjaldfrjálsar ferðir frá þéttbýliskjörnunum og hádegismat á laugardeginum.

Vinsamlegast smelltu hér fyrir frekari upplýsingar og skráningu. 

Við hlökkum til að sjá þig vegna þess að þín rödd og þitt atkvæði skiptir máli.

Verkefnið er styrkt af félagsmálaráðuneytinu og sveitarfélögunum.