6. desember

Jólatónleikar í Skálholti 15. desember

Jólatónleikar í Skálholtsdómkirkju 15. desember klukkan 20:00

Heiðursgestur á tónleikunum er Kristján Jóhannsson óperusöngvari sem syngur einsöng með kórunum.

Hátíðlegir jólatónleikar þar sem Skálholtskórinn, Kirkjukór Breiðabólstaðarprestakalls, Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkju og Kirkjukór Landeyja koma saman í Skálholti og syngja þekktar perlur aðventu og jólatónlistar sem koma öllum í hatíðarskap. Á tónleikunum munu kórarnir einnig syngja yndislega tónlist eftir John Rutter.

Meðal verka sem flutt verða eru Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, Guðs Kristni í heimi og Ó, helga nótt svo eitthvað sé nefnt.

Samtals eru um 80 kórsöngvarar sem syngja allir saman og líka í minni hópum. 

Jóhann I. Stefánsson leikur á trompet.

Organistarnir Jón Bjarnason og Guðjón Halldór Óskarsson stjórna kórunum og leika með á orgel.