25. nóvember

Gullna Hringborðið sett á laggirnar


Gullna hringborðið sett á laggirnar

Nýr samráðsvettvangur um þróun ferðaþjónustu sem tengist Gullna hringnum, Gullna hringborðið, hefur tekið til starfa. Fyrsti fundur var haldinn á Þingvöllum í gestastofunni á Hakinu. Þar komu saman fulltrúar opinberra stofnana sem fara með málefni tengd Gullna hringnum þ.e. fulltrúar frá menningar- og viðskiptaráðuneyti, Umhverfisstofnun, Þingvallaþjóðgarði, Vegagerðinni, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi og Hrunamannahreppi. Ráðgjafi frá RATA sá um fundarstjórn og leiddi samtal Gullna hringborðsins. 

Yfirskrift fundarins var: „Hvernig ætlum við saman að takast á við fyrirsjáanlega fjölgun ferðamanna á Gullna hringnum á næstu árum?“

Flutt voru kynningarerindi sem komu inn á stöðu mála á svæðinu út frá mismunandi sjónarhornum og rætt var um verkefnin framundan. Fjallað var um hlutverk og ábyrgð mismunandi aðila, framtíðarspár um fjölgun ferðamanna sem og skipulag og stjórnun áfangastaða. Einnig var farið yfir áskoranir í viðhaldi og þjónustu á vegum, áskoranir sveitarfélaga, viðhorf gesta og sitthvað fleira. 

Samstarfsvilji og jákvæðni var ríkjandi á fundinum. Framundan er  áframhaldandi samtal þessara aðila og verður óskað eftir aðkomu fleiri hagaðila, jafnt innan sem utan svæðisins, þegar fram líða stundir. 

Talið frá vinstri:
Einar Á.E. Sæmundsen, Helgi Kjartansson, Valdimar Kristjánsson, Ásta Stefánsdóttir, Eyrún Jenný Bjarnadóttir, María Reynisdóttir, 
Inga Dóra Hrólfsdóttir, Einar Pálsson, Hafdís Huld Björnsdóttir, Ásborg Arnþórsdóttir, Svanur G. Bjarnason, Hildur Kristjánsdóttir, 
Vigfús Þór Hróbjartsson, Katrín Karlsdóttir, Jón Bjarnason, Ása Valdís Árnadóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Vilhjálmur Árnason.