20. febrúar

Bændur, frumkvöðlar og sveitarstjórar á gervigreindarnámskeiði í Uppsveitunum

Á dögunum stóð Fræðslunet Suðurlands í samstarfi við byggðaþróunarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu fyrir gervigreindarnámskeiði sem haldið var í Reykholti í Bláskógabyggð.

Sverrir Heiðar Davíðsson, einn af stofnendum fyrirtækisins Javelin, sem sérhæfir sig í gervigreindarfræðslu, leiddi námskeiðið með miklum metnaði. Sverrir er með BSc í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc í gervigreind og gagnavísindum frá Denmark's Technical University (DTU).  Hjá Javelin er lögð rík áhersla á að kenna fólki að skilja gervigreindartólin og beita þeim af öryggi.  Markmiðið er að veita raunverulega þekkingu sem byggir á fræðilegum grunni og hagnýtri reynslu.

Bændur, sveitarstjórar, ferðaþjónustuaðilar, frumkvöðlar, fjármálastjórar og vélstjórar voru meðal þeirra sem sátu námskeiðið og var almennt mikil ánægja með það.

Það er dýrmætt fyrir landsbyggðina að geta boðið upp á aðgengi að hágæða-námskeiðum sem þessum til að efla staðbundna þekkingu. „Gervigreindin er nefnilega ekki framtíðin heldur er hún nútíðin og það er mikilvægt að ná að fylgjast með þessari þróun af öryggi og að geta nýtt sér hana til góðs“ segir Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu.