Þjórsárdalur

Þjórsárdalur - innlegg uppsveitanna til Evrópuverkefnis í menningartengdri ferðaþjónustu

Þjórsárdalurinn er innlegg uppsveita Árnessýslu í Evrópuverkefninu Destination Viking-Sagalands sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Markmið þess er að nýta Íslendingasögurnar, sagnahefð og fornar minjar frá víkingatíma og söguöld á norðurslóðum Evrópu til að efla þar ferðaþjónustu og aðra atvinnusköpun. Íslendingar leiða heildarverkefnið en innan þess eru nítján verkefni frá átta löndum, þar af sjö frá Íslandi.

Margt hefur áunnist frá því verkefnið fór af stað árið 2002.   Meginmarkmiðið er að gera hina stórmerku sögu svæðisins sýnilega gestum og gangandi og tengja saman sögu og ferðaþjónustu. Sumarið 2003 var haldið málþing þar sem fjallað var um Þjórsárdalinn út frá ýmsum sjónarhornum og nú er verið að vinna að hugmynd um merkingar sögustaða í dalnum í samvinnu við Fornleifavernd ríkisins. Landnámsdagur  var haldinn við góðar undirtektir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 12. júní 2004  þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá á þjóðlegum nótum

Þá er unnið að skemmtilegum samstarfsverkefnum þátttakenda, s.s. sameiginlegri kynningu og markaðssetningu á þessum svæðum.  Verkefnið miðar að því að miðla þekkingu milli landa, búa til tengslanet og rekja söguslóðir."

Þegar þessar línur eru skrifaðar í september 2006, er verkefninu formlega að ljúka.  Ljóst er að þrátt fyrir það verður framhald á samvinnu þátttakenda.  Á heimasíðu verkefnisins www.sagalands.org má fylgjast með framvindu mála.