Saga IceFire

Verkefnið, sem við höfum kosið að kalla ÍSELD, er afrakstur vinnu nemenda og kennara við Menntaskólann að Laugarvatni.

Þetta er umfangsmikið verkefni og til þess voru ætluð tvö ár, þannig að vorið 1999 mundi því ljúka. 

Verkefnið er þannig til komið að gerður var samningur við 8 sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu um að safna upplýsingum um svæðið og vinna þær til birtingar á vefnum. Þá skyldi ML einnig sjá um kynningu á vefnum á netinu og í öðrum fjölmiðlum.

Þeir þættir sem m.a. eru teknir fyrir eru umhverfið, náttúruperlur, saga, menning, þjónusta, kort, landafræði, samgöngur, jarðfræði, fólk, jarðhiti, jarðskjálftar og vatnsaflsorka.

Við vonum að eftir því sem verkið vinnst komi fram fleiri hugmyndir að áhugaverðum vefsíðum.

Þegar verkefninu lýkur í maí 1999 er ætlunin að mikið af upplýsingum verði að finna á vefsíðunum um svæðið sem við erum að fást við.

Það eru í stórum dráttum ferns konar markmið með þessu verkefni:

  1. Að kynna svæðið á vefnum með megináherslu á erlenda ferðamenn.
  2. Að kynna og auka notkun upplýsingatækni í námi og kennslu.
  3. Að mynda tengsl milli menntastofnunar og opinberra aðila og einkaaðila í samfélaginu.
  4. Að gera fólk á svæðinu meðvitaðra um möguleika upplýsingatækninnar.

Ekki vitum við betur en að þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskur skóli tekst á við verkefni af þessu tagi, og við höldum því fram, a.m.k. þangað til annað kemur í ljós, að eitthvað þessu líkt hafi ekki áður verið framkvæmt í heiminum. (það er ekki lítið tekið upp í sig).

Af þessum ástæðum teljum við að verkefnið getið orðið verðmæt fyrirmynd að frekari vinnu á þessu sviði.

Vefsíðurnar verða vonandi óvenjulegar að því leyti, að þar komi fram hliðar á lífi Íslendinga sem ekki er að öllu jöfnu getið í ferðamannabæklingum eða ritum. Við viljum að þetta verekfi gefi persónulegri og áhugaverðari mynd af landi og þjóð en aðrar vefsíður af svipuðum toga.

Menntaskólinn að Laugarvatni

Nemendur eru u.þ.b. 180 á aldrinum 16-20 ára. Starfsfólkið telur um 20 manns. Skólinn er heimavistarskóli í um 85 km. fjarlægð frá Reykjavík. Frekari uplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans sem er: www.ml.is

Þetta er í stórum dráttum það sem við viljum ná fram með þeirri vinnu sem í gangi er:

1. Ítarlegar vefsíður með upplýsingum um sveitarfélögin, sem nú eru orðin 7, en þau eru: Biskupstungnahreppur, Gnúpverjahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Laugardalshreppur, Skeiðahreppur og Þingvallahreppur.

2. Að um það bil 300 nemendur, sem stunda nám í skólanum á meðan vefsmíðin stendur yfir, hafi kynnst notkun upplýsingatækninnar og verði tilbúnir að lifa og starfa í upplýsingasamfélaginu.

3. Að um það bil 3000 íbúar í sveitarfélögunum, sem um er að ræða, hafi öðlast skilning á upplýsingasamfélaginu og gert sér grein fyrir notagildi þess fyrir sig og samfélagið allt.

4. Að kennarar við Menntaskólann að Laugarvatni verði búnir að öðlast ómetanlega reynslu í vinnu af því tagi sem hér um ræðir og tilbúnir að nýta þá reynslu sína til að aðstoða nemendur framtíðarinnar til að verða færari að lifa og starfa í upplýsingasamfélaginu.

Fólk á þessu svæði hefur gegnum aldirnar byggt afkomu sína að mestu á landbúnaði, en á síðustu árum hefur verið þrengt að þeirri atvinnugrein hér á landi ekki síður en annarsstaðar í Evrópu. Með EES og GATT samningunum hefur útlitið enn dökknað, sérstaklega fyrir smærri bú þar sem þau eru ekki lengur samkeppnisfær.

Af þessu sökum hafa íbúar á svæðinu töluvert verið að leita fyrir sér um nýjar atvinnugreinar og hefur athyglin ekki síst beinst að ferðaþjónustu. Um er þá að ræða lítil fyrirtæki sem hafa litla möguleika til kynningarstarfsemi.

Árið 1996 hófu sveitarfélögin samstarf í umfjöllun um og þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Kosin var verkefnisstjórn til þriggja ára og ráðinn var ferðamálafulltrúi. Verkefni nefndarinnar var að gera úttekt á ferðþjónustunni á svæðinu og gera tillögur að samræmingu hennar og þróun. Þessi vinna er nú í fullum gangi og er það von okkar að vefsíðurnar reynist mikilvægur þáttur í því starfi.