"Our future is now"
Evrópusamstarf og EUTO ráðstefna á Íslandi
Dagana 1.-5. september 2004 var haldinn á Íslandi aðalfundur og árleg ráðstefna EUTO, European Union of Tourist Officers sem eru Evrópusamtök forsvarsmanna í ferðaþjónustu í Evrópulöndum. Félagið okkar FFÍ, Félag ferðamálafulltrúa á Íslandi er aðili að EUTO og var umsjónaraðili ráðstefnunnar hérlendis.
Fyrir ráðstefnuna hefur jafnframt verið skipulögð námsferð fyrir erlendu gestina, sem vilja kynna sér sérstaklega íslenska ferðaþjónustu með áherslu á umhverfi og menningu. Góð samvinna var við Hólaskóla varðandi heimsóknina og kom skólinn einkum að faglega þættinum. Gestirnir ferðuðust m.a. ferðast um Norðurland, Snæfelsnes og Suðurland þar sem ýmis verkefni voru kynnt. EUTO ráðstefnan, sjálf fór fram í Reykjavík og fjöldi erlendra gesta frá ýmsum Evrópulöndum tók þátt í dagskránni auk Íslendinga
FFÍ
er fagfélag starfandi upplýsinga-, markaðs- og ferðamálafulltrúa á landinu og forstöðumanna upplýsingamiðstöðva, stofnað árið 2000. Fyrstu stjórn þess skipuðu; Jón Halldór Jónasson, Hafnarfirði, Auróra G. Friðriksdóttir, Vestmannaeyjum og Ásborg Arnþórsdóttir Uppsveitum Árnessýslu.
Meginmarkmið FFÍ er að efla fagmennsku á fjölbreyttan máta og taka þátt í þróunarstarfi í ferðaþjónustu innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. FFÍ er aðildarfélag í EUTO.
