Samtök um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð í maí 2006. Í samtökunum eru nú nær 60 aðilar um allt land og voru þau stofnuð í kjölfar þátttöku sjö þeirra í Evrópuverkefninu Destination Viking - Sagalands (2003-2005). Þar voru einnig þátttakendur frá Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Orkneyjum, Hjaltlandseyjum, Mön og Nýfundnalandi. Sá samvinnuhugur sem þar ríkti hefur skilað sér yfir í nýstofnuð samtök en helsta markmið þeirra er að vera samvinnu- og samráðsvettvangur þeirra er stunda sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi. Auk þess er markmiðið að auka samvinnu í kynningarmálum, gæðamálum og stuðla að aukinni fagmennsku. Ákveðið var að samtökin skuli í fyrstu leggja áherslu á arfleifð íslenskra miðaldabókmennta, fyrstu aldir Íslandsbyggðar og miðaldamenningu, þ.e. tímabilið frá landnámi og fram að siðaskiptum 1550. Ekki er þó loku fyrir það skotið að tímabilið verði víkkað umtalsvert en skynsamlegt þótti að afmarka starfsemina með þessum hætti í byrjun.
Á heimasíðu samtakanna kynna félagar sig og sína starfsemi; söfn, sýningar, minjar, mannvirki, hátíðir, slóðir ákveðinna Íslendingasagna og margt fleira. Auk þess er listi yfir alla félaga og helstu viðburði á þeirra vegum.
Velkomin á íslenskar söguslóðir! www.sagatrail.is
Rögnvaldur Guðmundsson,
formaður Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu.