Veðurguðirnir
Saga Veðurguðanna
Veðurguðirnir byrjuðu sem brandari þegar að þrír ungir menn ákváðu að hittast í bílskúr í Biskupstungum drekka öl og spila lög með hljómsveitinni SSSól.
Þetta var um haustið 2003. Þessir þrír ungu menn voru Eyþór Loftsson frá Laugarási, Valgeir Þórsteinsson tungnmaður og Birkir Kúld Pétursson nagli frá Selfossi. Birkir þessi gerði sér reglulega ferð í sveitina í þágu hans hátignar en ónefnd vinkona strákanna bjó á næsta bæ við Eyþór.
Strákarnir hittust einu sinni í viku í mesta lagi og óhætt er að segja að tónlistarlegur metnaður hafi sjaldnast verið í hávegum hafður. Þrátt fyrir það létu piltarnir ekkert aftra sér frá því að bóka fyrsta giggið en sú ákvörðun var tekin að spila á Pakkhúsinu, Selfossi, fimmtudagskvöld í byrjun desember. Ekki var lagalistinn þykkur og segir sagan að lög eins og Bítlalagið Don't let me down og SSSól ballaðan Síðan hittumst við aftur á miðri leið hafi fengið að hljóma þrisvar sinnum á þessu 90 mínútna setti. Jafnframt vöktu glöggir áheyrendur athygli á því að yfirleitt söng hljómsveitin bara viðlögin.
Þrátt fyrir allt var strákunum hampað í Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem þeir stunduðu nám og ákveðið var að Veðurguðirnir myndu hita upp fyrir átrúnaðargoðið Helga Björnsson á jólaballi síðar í mánuðinum.
Birkir söngvari gerði sér grein fyrir að nú yrði að hressa upp á prógrammið og helst að fá einhvern með sem gæti sungið erindin líka. Til allrar hamingju var Ingólfur nokkur Þórarinsson æskufélagi Birkis á leið heim frá Svíþjóð í stutt jólafrí en hann spilaði þar fótbolta og gekk í skóla. Birkir og Ingó höfðu áður myndað dúettinn eitraða Birkir, Ingó og Undirleikararnir en Ingó tók vel í að spila með Veðurguðunum á þessu balli.
Töluverðar framfarir mátti sjá á þessu balli og var lögum eins og Hey Ya eftir Outkast og Stuðmannaslagaranum Ofboðslega frægur hent inn á prógrammið en þau hafa bæði haldist þar fram til dagsins sem þetta er skrifað. Veðurguðirnir þóttu standa sig vel á ballinu en því miður blasti við að Ingólfur héldi aftur til Svíþjóðar að halda áfram á framabraut knattspyrnunnar. Úr því varð þó ekki og ákveðið var að leggjast í æfingar sem miðuðu að því að geta haldið út í allavegana 3 klukkutíma.
Það gekk furðuvel enda höfðu Valgeir og Eyþór töluverða reynslu saman úr pönkbandinu Hölt Hóra og Birkir og Ingó einnig úr fyrrnefndum dúett. Giggin duttu inn í rólegheitunum og vakti hljómsveitin sérstaklega athygli fyrir það að höfða til breiðs aldurshóps en það má að miklu leyti rekja til fjölda íslenskra dægurlaga á prógramminu.
Sveitin nýtti öll tækifæri sem gáfust til að spila og oft voru launin í formi matarbita. Erfiðið styrkti hinsvegar sveitina og spilamennskan skánaði í sífellu. Slegið var upp böllum á stöðum eins og Hellu, Mynd 1: Veðurguðirnir: Maggi, Ingó,Eyþór og Valli. Ljósmynd Valtýr Bjarki Valtýsson Selfossi og Flúðum sem verður að teljast með sterkari vígum Guðanna enn þann dag í dag. 2004 var semsagt fljótt að líða en enn var langt í land.
Árið 2005 fór hægt af stað. Hugmyndin að taka upp frumsamið lag blundaði í mönnum í von um skjótari frama en vegna anna á öðrum vígstöðvum var því ávallt frestað. Það gerðist því lítið marktækt annað en að Veðurguðirnir héldu áfram að batna sem hljómsveit og spiluðu drengirnir á svipuðum stöðum og árið áður fyrir utan stöku brúðkaupsveislur og ferðir út á land.
Ferðir þessar voru oft farnar án mikilla pælinga og stendur sennilega sú djarfa ákvörðun uppúr þegar drengirnir tóku sig til og keyrðu á Hornafjörð á jóladag. Þessi ferð var farin í óðagoti enda lofuðu staðarhaldarar miklu fjöri. Þess má kannski geta að mæður Guðanna voru ekki par ánægðar með þessa jólaferð.
Það var svo um haustið 2006 að Ingólfur söngvari eða Ingó eins og hann er oftast kallaður fékk þá hugmynd að taka þátt í Idol Stjörnuleit Stöðvar 2. Þar gekk honum sæmilega þó svo að allir væru sammála um að hann væri betri með gítarinn á sér eða ekta hljómsveit á bakvið sig.
Aftur á móti hafði þetta jákvæð áhrif fyrir Veðurguðina, eða svo virtist í fyrstu, þegar Concert, umboðsskrifstofa Einars Bárðarsonar tók strákana að sér. Planið var að klára strax nokkur lög með köppunum en lítið varð úr þeim áformum og giggin urðu ekki eins mörg og drengirnir höfðu gert sér vonir um. Ingó spilaði úti um allt en lítið fór fyrir Veðurguðunum.
Ákveðinnar togstreitu fór að gæta innan bandsins og uppgjafartónn var kominn í sveitina. Þessir daufu tímar urðu til þess að Birkir Kúld gítarleikari ákvað að leggja gítarinn á hilluna þann 17. júni. Erfitt var að sjá á eftir Birki enda fór þarna aðalgítarleikari sveitarinnar og annar söngvari. Það lá beinast við að fá mann til að fylla upp í skarð Birkis enda menn ekki tilbúnir að gefast upp alveg strax.
Magnús Guðmundsson var ráðinn. Magnús þessi var góður félagi strákanna allra en hann spilaði með Eyþóri og Valla í hljómsveitinni Hölt Hóra. Einnig hafði hann verið í ballhljómsveitinni Synir Gunnu með strákunum þegar þeir stunduðu nám á Selfossi. Magnús sparkaði aðeins í rassinn á drengjunum og kom með hugmyndir en hann var ekki búinn að vera starfandi lengi þegar sú ákvörðun var tekin að hætta hjá Concert og fara að starfa sjálfstætt.
Concert tíminn hafði þó haft ýmislegt gott í för með sér líka eins og skemmtilegar ferðir á Blönduós og Húsavík svo eitthvað sé nefnt.
Þegar þetta er skrifað vinnur sveitin í að klára lag og hefur Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Á Móti Sól tekið að sér að aðstoða við að koma þeim á framfæri. Heimir þessi þekkir drengina nokkuð vel og þá sérstaklega Ingó sem tók nokur gigg með Á Móti Sól meðan Magni var staddur erlendis.
Hér hefur verið stiklað á stóru í sögu Veðurguðanna saga þessi mun væntanlega vinda upp á sig með hverjum mánuðinum sem líður svo að, fylgist með!
Ingólfur Þórarinsson
Veðurguðirnir - upprunalegi texti og heimildir