Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu skipulagsverkefnis fyrir eftirfarandi verkefni:
1. Frístundabyggð úr landi Eystra-Geldingaholts 5 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Lögð fram til kynningar lýsing á skipulagsverkefni vegna deiliskipulags 6 ha svæðis fyrir frístundabyggð úr landi Eystra-Geldingaholts 5. Gert er ráð fyrir að afmarkaðar verði 2-3 frístundahúsalóðir innan svæðisins. Eitt frístundahús hefur þegar verið reist og skv. tillögunni er gert ráð fyrir einu öðru húsi auk um 140 fm vinnustofu.
2. Skálasvæðið Hvítárnes á kili í Bláskógabyggð.
Lögð fram til kynningar lýsing á skipulagsverkefni vegna deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Hvítárnes í Bláskógabyggð. Skipulagssvæðið nær yfir núverandi skála í Hvítárnesi og nánasta umhverfi. Í deiliskipulaginu er m.a. fyrirhugað að afmarka lóð utan um núverandi hús til að hægt verið að skrá það með formlegum hætti í fasteignaskrá, gera ráð fyrir stækkun á salernishúsi, gera ráð fyrir byggingarreit fyrir skálavarðahús og afmarka tjaldsvæði og bílastæði.
Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
3. Tillaga að deiliskipulagi fyrir bæjartorfu Skálmholts í Flóahreppi.
Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir 8 ha svæði í landi Skálmholts þar sem fyrirhuguð er uppbygging á gripa- og útihúsum, vélahúsum og starfsmanna- og þjónustuhúsi. Skipulagssvæðið er umhverfis núverandi bæjartorfu auk þess sem gert er ráð fyrir byggingarreit fyrir starfsmanna- /ferðaþjónustuhús upp við landamörk við jörðina Þjótanda.
4. Tillaga að deiliskipulagi um 4 ha frístundabyggðarsvæði úr landi Syðra-Langholts í Hrunamannahreppi. Vesturhlíð.
Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir ca. 3,96 ha frístundasvæði í landi Syðra-Langholts 2 sem nefnist Vesturhlíð. Í skipulaginu er gert ráð fyrir þremur 7.950 fm frístundahúsalóðum, þremur 3.326 fm ræktunarlóðum og einni 5.777 fm. sameignarlóð fyrir aðkomuveg, bílastæði ásamt mögulegri leikja- og tjaldflöt fyrir gesti.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
5. Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Sunnuhlíðar á Flúðum, Hrunamannahreppi. (uppdr.) (greinarg.)
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Sunnuglóðar á Flúðum. Um er að ræða 2. áfanga íbúðarbyggðar og nær skipulagssvæðið yfir um 39 ha svæði sem afmarkast af Hvítárholtsvegi og Bræðratunguvegi að norðanverðu, frístundabyggð úr landi Efra-Sels að vestan, Litlu-Laxá að sunnan og tjaldssvæði sveitarfélagsins að austan. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi eru 12 stórar einbýlishúsalóðir syðst á svæðinu. Breytingin felur í sér að við bætast 53 einbýlishúsalóðir og samtals 60 íbúðir í parhúsum á svæði norðan við núverandi lóðir. Í heild er því gert ráð fyrir allt að 125 íbúðum á svæðinu. Tillaga var auglýst til kynningar 14. október 2010 með athugasemdafresti til 26. nóvember en tók aldrei endanlega gildi og er því auglýst til kynningar að nýju.
6. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Hraunborgar í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunborgar svæði A í landi Hraunkots þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 25 fm verkfærageymslu/gestahús við Húsasund, svæði 2, til að samræma skilmálana innan jarðarinnar.
7. Tillaga að deiliskipulagi fyrir 24,7 ha lögbýli úr landi Hamarsholts í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt 24,7 ha lögbýli úr landi Hamarsholts í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mun heita Lómsstaðir. Landið liggur við þjóðveg nr. 325 upp við landi Víðhlíðar. Skipulagssvæðið sjálft er um 1 ha að stærð og er næst þjóðvegi. Þar er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir íbúðarhús og byggingarreit fyrir útihús. Aðkoma að nýjum húsum verður sameiginleg með Víðihlíð.
8. Deiliskipulag 10 ha spildu umhverfis bæjartorfu Dalbæjar (landnr. 165468) í Flóahreppi.
Tillaga að deiliskipulagi yfir 10 ha spildu í landi Dalbæjar lnr. 165468 þar sem gert er ráð fyrir tveimur byggingarreitum, annars vegar fyrir allt að 180 fm íbúðarhúsi og hins vegar fyrir allt að 1.000 fm hesthúsi. Skipulagssvæðið er umhverfis núverandi bæjartorfu sunnan Hamarsvegar og er aðkoma að nýjum húsum um sama afleggjara.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni og á skrifstofum viðkomandi sveitarfélaga á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni /skipulagsfulltrui/auglysingar/. Kynningartími fyrir skipulagstillögur 1- 4 er frá 19. janúar til 9. febrúar 2012 og kynningartími fyrir skipulagstillögur nr. 5 til 8 er frá 19. janúar til - 2. mars. Athugasemdir við tillögur 1 - 4 skulu berast skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 9. febrúar 2012 og í síðasta lagi 2. mars fyrir tillögur nr. 5 til 8. Athugasemdir skulu vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests, telst vera samþykkur þeim.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps