25. júní

Pílagrímaganga 3. hluti

Þriðji hluti pílagrímagöngu Strandarkirkja-Skálholt 2016

Næstkomandi sunnudag verður gengin þriðja dagleið í nýrri fimm daga pílagrímagöngu frá Strandarkirkju alla leið heim í Skálholt. Það er Ferðafélag Íslands sem skipuleggur gönguna ásamt undirbúningsnefnd. Fararstjórar í þessari ferð eru þeir Axel Á Njarðvík og Halldór Reynisson.

Í þessum þriðja hluta sem verður gengið frá Stokksteyrarkirkju í Villingaholtskirkju. Lagt verður af stað með rútu frá Villingaholtskirkju kl. 9:30 og ekið að Stokkseyrarkirkju. Í Stokkseyrarkirkju hefst síðan gangan eftir stutta morgunstund í umsjón sóknarprestins sr. Kristjáns Björnssonar. Þessi ganga er um 19 km löng og er gott að vera í góðum gönguskóm og með nesti.

Gengið verður að Knarrarósarvita, um Gaulverjabæjarkirkju , upp Flóann og að Villingaholtskirkju. Staldrað verður víða við til hugleiðingar og hvíldar.

Næstu dagleiðir eru síðan eftirfarandi:
10. júlí. Villingaholt í Flóa - Ólafsvallakirkja á Skeiðum. Brottför með rútu frá Ólafsvallakirkju kl. 9:30. Gengið um Flóann og upp Skeiðin um 20 km leið um sunnlenska sveit.

24. júlí. Ólafsvallakirkja á Skeiðum - Skálholtsdómkirkja. Brottför með rútu frá Skálholti kl. 7:00. Gengið um 17 km leið frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum sem leið liggur um fallega sveit norður í Skálholti. Göngunni lýkur á Skálholtshátíð þar sem pílagrímar koma einnig úr Borgarfirði þennan dag.

Hver ferð kostar kr. 9.000 (6.000 kr fyrir félaga í FÍ) og er það Ferðafélag Íslands sem heldur utanum skráningu í ferðirnar en nánari upplýsingar má finna á vefsíðu FÍ: http://www.fi.is/ferdir/ferdir-fi/nr/1926/eða í síma 5682533.