22. október

Málþing á Flúðum miðvikudaginn 26. október

Opið málþing verður haldið  á Flúðum næstkomandi miðvikudag 26. október.

Tilefnið er að hjá okkur eru góðir gestir

20 manna hópur frá Skotlandi, fólk úr ferðabransanum  sem er að kynna sér ferðaþjónustu, einkum í tengslum við mat, menningu  og matarframleiðslu.

"Learn, taste, Experience- Iceland"

Þau dvelja hér á landi í viku og heimsækja ýmsa staði, skoða, fræðast og smakka.

En á miðvikudeginum 26. okt. er efnt til þessa samtals á Flúðum frá kl. 13:00  og það er öllum opið

Hvet alla áhugasama að koma, hlusta  á innlenda og erlenda fyrirlesara og e.t.v. spjalla við þessa góðu gesti og efla tengslanetið.

Allt um málþingið hér