"Uppsveitabrosið" er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki.
Bros frá Uppsveitunum til þeirra sem hafa lagt ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu.
Markmiðið er að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert.
Hugmyndin kviknaði í stefnumótunarvinnu sem fram fór 2003.
2008
Árið 2008 voru það læknarnir í Laugarási, þeir Gylfi Haraldsson og Pétur Skarphéðinsson sem hlutu brosið.
Í Uppsveitum Árnessýslu , sveitarfélögunum fjórum frá frá Þingvöllum að Þjórsá eru um 2.600 íbúar
og búa þeir við frábæra læknisþjónustu í Heilsugæslustöðinni í Laugarási.
En í Uppsveitunum eru einnig um 5000 sumarhús og yfir 500.000 ferðamenn heimsækja svæðið á hverju ári.
Þrátt fyrir að læknisþjónusta sé ekki almennt talin til ferðaþjónustu er ljóst að tenging er þar á milli og fleiri en íbúarnir leita til læknanna í Laugarási. Þeir ferðamenn sem hafa vegna slysa eða veikinda þurft að leita til læknanna hafa verið undrandi og þakklátir.
Það er ekki sjálfgefið að hafa svo gott aðgengi að læknissþjónustu hvort sem miðað er við aðra landshluta eða önnur lönd.
Læknarnir hljóta Uppsveitabrosið 2008 fyrir einstaka læknisþjónustu og góða samvinnu.
2007
Árið 2007 fengu tvær konur brosið; Steingerður Hreinsdóttir og Sædís Íva Elíasdóttir, ráðgjafar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands.
Uppsveitabrosið fá fengu þær m.a. fyrir framúrskarandi samvinnu.
2006
Útflutningsráð sem fékk uppsveitabrosið 2006, fyrir vaxandi tengsl við ferðaþjónustuna og góða samvinnu. Inga Hlín Pálsdóttir verkefnisstjóri tók við brosinu fyrir hönd Útflutningsráðs.
2005
Rögnvaldur Guðmundsson, hjá Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar hlaut brosið 2005 fyrir góða samvinnu og vinnu í ferðamálum í Uppsveitum Árnessýslu
2004
Það var Ferðaþjónusta Bænda sem hlaut fyrsta Uppsveitabrosið 2004 fyrir vinnu í gæðamálum og góða samvinnu, Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri tók við brosinu f.h. Ferðaþjónustu bænda.
Brosið er óáþreifanlegt, en því fylgir ávallt hlutur sem handverks- eða listamaður í Uppsveitunum býr til hverju sinni.
2008 Helga Magnúsdóttir í Bryðjuholti gerði gripina, skar út úr tré tvær íslenskar fornhetjur.
2007 var það Gréta Gísladóttir, myndlistarkona í Reykholti, sem annaðist það. Hún málaði myndir af sunnlenskum fjöllum, Jarlhettunum og Heklu sem tákn um kraftinn sem býr í þessum athafnakonum.
2006 Ragnhildur Magnúsdóttir, handverkskona Gýgjarhólskoti og handverksmaður ársins 2006
2005 Þuríður Steinþórsdóttir, listakona á Laugaratni, Gallerí Laugarvatn
2004 Rut Sigurðardóttir, Dalbæ 2, Hrunamannahreppi, glerlistakona
Fyrirhugað er að veita einu fyrirtæki eða einstakling þessa viðurkenningu á ári hverju.
Ábendingar má senda til ferðamálafulltrúa.