Hjonavok

Hjónavök

Laugarvatn í Laugardal getur verið mjög hættulegt yfirferðar á ís á veturna. Þegar vatnið frýs þá myndast alltaf vök að vestanverðu sem nefnist Hjónavök. Blönduháls hét bær í Laugardal sem stóð yst í Eyvindartunguhögum. Munnmæli herma að einu sinni sem oftar hafi hjónin frá Blönduhálsi farið til kirkju að Miðdal á jóladaginn. Heimildum ber ekki saman hvort hjónin hafi drukknað á leið í kirkju, eða á leið heim. En þau ætluðu að stytta sér leið yfir vatnið og eiga að hafa lent í vökinni og drukknað. Af þessum atburði dregur vökin nafn sitt.