Blótbjörk
Á Lyngdalsheiði í Grímsnesi er eyðibær sem kallaður er Blótbjörk. Eitt sinn á jólanótt, á meðan allir fóru í aftansöng, voru tvær kerlingar og drengur í bænum. Kerlingarnar fóru að rífast heiftarlega og féllu ófá ljót orð á milli þeirra. Drengurinn flúði þær út í fjós, en eftir nokkra stund byrjaði allt að hríðskjálfa. Varð þá drengurinn skelkaður og hljóp út að Klausturhólum og sagði fólki frá. En þegar fólk kom að bænum var ekkert eftir nema svart flag, sem er þar enn þann dag í dag.