Barnhóll á Laugarvatni
Eitt sinn gerðist það að mikill veðhlaupahestur sem hét Gulur frá Laugarvatni, eigandi hans var Bjarni Bjarnason skólastjóri, féll niður dauður og er það talið tengjast Barnhól sem er í túninu á Laugarvatni. Það er sagt að þau álög hvíli á að ekki megi slá Barnhólinn. Ef það er gert þá missi ábúandinn einhvern kostagrip.
Böðvar Magnússon, er átti Laugarvatnsjörðina þegar Héraðsskólinn var stofnaður 1928, og Bjarni skólastjóri lögðu bann við að slá hólinn. Það var eitt sinn að Bjarni fékk ókunnugan kaupamann. Kaupamaðurinn sló hólinn í fjarveru Bjarna og daginn eftir drapst ein besta mjólkurkýr Bjarna. Eftir þetta missti Bjarni þó nokkra hesta og stólpagripi og var þetta allt saman talið tengjast því að hólinn hafi verið sleginn.