Kerið og vatnið á Búrfelli
Í þjóðsögum segir að skrímsli sé í vatninu á Búrfelli og í Kerinu. Á það að fara á milli vatna í gegnum göng. Einnig segir frá Nykri sem á að vera í Hestvatni fyrir neðan Búrfell og í vatninu á Búrfelli. Á hann að vera í 20 ár í senn í hvoru vatni og á einnig að fara um göng á milli vatnanna.